Dagur hræsni er haldinn í dag, 27. sept í Eldborgarsal Hörpu, þar sem beðið var fyrir stjórnvöldum, kvótakerfinu, útgerðargreifum og þó sérstaklega fyrir þeim lygurum og lýðskrumurum sem hafa það að atvinnu að koma fram í fjölmiðlum og ljúga sig hása að fólkinu í landinu þess efnis að hér sé allt í himnalagi, aldrei hafi verið hrun og þeirra stjórn sé búin að taka á efnahagsvandanum. Einnig er þess krafist af guði að hann stöðvi hið illa umtal sem þeir verða fyrir.
7. Atvinnulíf í landinu og afurðir
Sjávarútvegur
Biðjum fyrir útgerðafyrirtækjum og kvótakerfinu, biðjum um blessun hans og vilja með
sjávarútveginn. Biðjum um blessun Guðs yfir fiskimiðin og allan sjávarafla.
Biðjum um vernd og varðveislu fyrir sjómennina okkar og fjölskyldur þeirra.
Bænaskjalið má lesa í heild sinni hér.
Forsetaómyndin setti hátðina með ræðu þar sem hann hóf kirkjuna og kristnina á stall þar sem hann talaði um umburðarlyndi kristninar og að án hennar væru íslendingar bölvaðir skrælingjar sem tilbæðu skurðgoð og ætu hrossakjet og stunduðu það í frístundum að afhöðfa óvini sína.
Einnig var Geir H. Haarde fenginn til að halda ræðu og bað hann guð að blessa Ísland.