Það er magnaður andskoti að fylgjast með sjónvarpsfréttum á RÚV um þessar mundir.
Síðustu mánuði hef ég byrjað daginn á því þegar ég kem fram að kveikja á sjónvarpinu, fara á YouTube og horfa á fréttatíma ríkissjónvarpsins svona til að athuga og fylgjast með hvernig fréttatök þessarar stofnunar eru á daglegum basis og alltaf kemur í ljos hvað þetta er ótrúlega mikl ruslveita með handónýtt fréttafólk inninborðs og þessar svokölluðu fréttir eru svo lélegar og illa unnar að maður á bara ekki eitt einasta orð yfir það því orðið „rusl“ eða „sorp“ er svo innihaldslaust til að lýsa þessu að það vantar eiginlega nýyrði yfir þetta.
Þegar fór að gjósa á dögunum eyddi þessi svokallaða fréttastofa 20 mínútum í að röfla fram og til baka um gosið, mögulega lengd þess, en eins og allir vita sem eitthvað hafa fylgst með gosum á íslandi, þá er gjörsamlega vonlaust að spá fyrir um hvort það standi í tvær vikur, tvo mánuði eða tvö ár, en þessir svokölluðu sérfræðingar slógu í og úr, töluðu í austur og vestur varðandi lengd gosins og enduðu allir á að fara norður og niður í umræðunni þannig að áhorfendum fannst þeir hafðir að fíflum að hafa eytt tíma í að hlusta á rausið sem engu skilaði, hvorki upplýsingum né fræðslu annari en þeirri sem hefur milljón og þrisavar komið fram, gasið frá gosinu er hættulegt. DUHHHH!!!
Á sama tíma og allt kraumar í spillingu, svikum og sérhagsmunagæslu innan stjórnkerfisins þar sem tvær sölur á Íslandsbanka eru milli tannana á fólki, sérstaklega sú síðari, Lindarhvolsmálið og fleiri lögbrot og þjófnaðir formanns Sjálfstæðisflokksins sem jafnframt er fjármálaráðherra í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur þá stígur glæpakóngurinn fram og segist ætla að selja Landsbankann og Póstinn.
Bíddu nú við?
Er ekki allt í lagi að rannsaka þessi fyrrnefndu málll í þaula áður en helvítis glæpahundinum í fjármálaráðuneytinu er hleypt með sína löngu fingur og þjófótta eðli í að gefa vinum og vandamönnum fleiri banka og póstþjónustuna?
Reyndar er pósturinn OHF sem þýðir að hann er í ríkiseigu að mestu en það breytir því ekki að þjónustan eftir þá breytingu hefur húrrað niður, hálfa leið til helvítis og gjöld hækkuð, útibúum fækkað og þjónusta skorin niður nánast inn að beini.
Hvaða „heppni“ ættingin skildi nú vera útvalin til að hreppa póstþjónustuna?
En fréttastofa Rúv, fréttastofa „allra“ landsmanna fjallar ekkert um þessi mál.
Bara yfirborðskennda hluti þar sem illa áttaðir „fréttamenn“ hlaupa út um allar trissur til að ná á ferðamenn sem koma að skoða gosið og spyrja þá hinnar klassísku spurningar; „HOW DO YOU LIKE ICELAND“? (YOU FUCKING MORAN).
Ég skal reyndar já að ég hló upphátt þegar einhver franskur krakkaskítur lýsti því yfir að hraunið væri heitt, miklu heitara en hann hefði trúað. En við hverju er að búast? Þetta er bráðið grjót sem getur orðið allt að 2.500 gráðu heitt og þegar þú ert komin með heilan ferkílómetra af því og nokkurra metra þykkt þá er þetta eins og að vera í bræðsluofni.
Svona svör eins og frakkaræfillinn gaf er dæmigert fyrir kynslóð sem fær enga raunverulega uppfræðslu í skólum í dag og því miður er ástandið lítið skárra á íslandi.
En hvar í fjandanum er öll umfjöllunin um spillinguna á ísalndi?
Eru engir raunverulegir fjölmiðlar í landinu því RÚV er orðið svo lélegt og aumkunnarvert að það er sárasaukafullt að horfa fréttatímana hjá þeim því aumingjaskapurinn, yfirborðsmennskan og ræfildómurinn er komin út yfir allt velsæmi.
Ég hef svolítið verið að horfa á þætti á Samstöðinni og þar er þó kafað aðeins ofan í hlutina og reynt að greina þá sbr viðtal við formann leigiendasamtakana sem var hjá Gunnari Smára á dögunum og fór þar ofan í vinnu starfshóps í húsnæðismálum þar sem dregin var upp, ekki bara ljót mynd, heldur dæmigerð mynd af sukki, spillingu og sérhægsmunagæslu Framsóknarflokksins í húsnæðismálum og málefnum leigeinda.
Ég skora á fólk að horfa á þáttinn hér að neðan þar sem formaðurinn fer einnig yfir svik verkalýðshreyfingarinar við leigendur.
Samstöðin stendur sig svo mikið betur í að flytja raunverulegar fréttir, tala við raunverulegt fólk og koma með raunverulegar upplýsingar fyrir almenning sem RÚV, fréttastofa „allra“ landsmanna gjörsamlega hunsar og best væri í raun að leggja þetta handónýta batterí niður og hætta að rukka almenning um skatta fyrir þessa ruslaveitu.