Á myndinni hér til hliðar má berja augum þá einstaklinga sem bjóða sig fram til embættis forseta líðveldisins Ísland.
En hver þeirra skyldi nú eiga að fá atkvæði mitt?
Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör og ef grant er skoðað sést texti undir myndinni sem kanski lýsir best mínu áliti á því fólki sem býður sig fram í þetta embætti.
Í fyrsta skipti síðan ég fékk kosningarétt ætla ég ekki að nýta mér hann. Ég ætla að sitja heima og láta restina af þessari ógeðslegu kosningabaráttu fara algerlega fram hjá mér án þess að skipta mér hið minnsta af henni.
Þessir frambjóðendur hafa hingað til ekki fært mér neitt sem gefur mér ástæðu til að kjósa þá en hafa verið því duglegri við að benda á galla annara frambjóðenda og hæla sjálfum svo jaðrar við mikilmennskubrjálæði á versta stigi, en þó hafa stuðningsmenn sumra frambjóðenda gengið svo algerlega fram af mér í öfgum sínum og ofstopa við að drulla yfir aðra frambjóðendur, að ég varð algerlega afhuga því að kjósa viðkomandi. Af því sem ég hef séð hafa stuðningsmenn Þóru þó farið yfir öll rauðu strikin í bókinni og að auki búið til svona 30 ný því til viðbótar. Þóra sjálf er langt í frá trúverðug og mér persónulega finnst hún engan vegin frambærileg sem forseti. Hún einfaldlega hefur ekkert til að bera í þetta embætti að MÍNU MATI!
Ólafur Ragnar er búinn að vera lengi í þessu embætti og umdeildur eins og gefur að skilja en hann kann að haga seglum eftir vindi og þó ótrúlegt sé þá hlustar hann á þjóðina svona þegar það hentar honum en hann hefði átt að gera meira af því. Hef ekki heyrt mikin áráður frá stuðningsmönnum hans nema gagnrýni á stuðningsfólk Þóru og það ekki að ósekju. Kanski hans stuðningsmenn séu meira í leynum og skammist sín fyrir að vilja hann áfram sem forseta. Kæmi reyndar ekkert á óvart eins og gagnrýnin hefur verið á hann.
Rest skiptir svo sem engu máli enda hef ég ekkert verið að eltast við málflutning þeirra og stuðningsfólk þeirra ekki verið mikið að þvælast fyrir augunum á mér.
Samt er það svo í ljósi þess hvernig kosningabaráttan hefur verið, að ég fékk algert ógeð og ætla því að sitja heima á kosningadag.