Tuðrusparksfrík

Ég er einn af þeim sem sem á góðri íslensku kallast antisprotistar og fátt fer meira í taugarnar á mér íþróttir í fjölmiðlum og þá sérstaklega boltaíþróttir og hæpið í kringum þann ömurlega sirkus allan.

Fátt finnst mér þó heimskulegra en þeir sem klæða sig upp í treyjur og trefla upphálds tuðrusparksfélagsliðs síns, planta sér fyrir framan sjónvarpið með snakk og drykkjarvörur, hækka tækið í botn og nánast hrekja fjölskylduna að heiman á meðan leik stendur og öskra svo hástöfum út allan leikinn á skjáinn.

Fyrir mér er þetta hámark heimskunar.

Sæi alveg fyrir mér þá sem aðhyllast mótorsportið og fylgjast grimmt með formúlunni eða GP 500, klæða sig í leðurgallann, skella hjálm á hausinn og planta sér fyrir framan imbann og öskra á ökuþórana á skjánum.

Ég bara veit að mótorsportistarnir eru aðeins ofar í gáfnaþrepinu en tuðrusparksgerpin.

Umsagnir

Umsagnir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrifa

Updated: 5. mars 2021 — 07:59