![Hannes framan við helgidóminn á heimili sínu hvar hann biðst fyrir í fjóra tíma á degi hverjum. Hann á einnig ferðaaltari.](https://jack-daniels.is/wp-content/uploads/2013/06/algtari-hannesar-150x150.jpg)
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er alveg brjálaður og hótar að segja upp viðskiptum sínum við Gunnars Majones vegna ummæla sem Helen Gunnarsdóttir, ekki dóttir Gunnars stofnanda majonesfabrikkunar, skildi eftir í athugasemdarkerfi DV við frétt þar sem fjallað var um Hannes. Hannes taldi að þarna væri um dóttur Gunnars að ræða og ákvað á stundinni að segja upp öllum viðskiptum sínum við fyrirtækið.
Fréttin fjallaði um leiðaraskrif Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins. Í nafnlausu Reykjavíkurbréfi hafði Davíð sakað Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrverandi forsætisráðherra um að hafa aðeins boðið einum starfsmanni forsætisráðuneytisins góðan daginn á morgnana þegar hún gegndi embætti. Helen var ein þeirra fjölmörgu sem hneykslaðist á Davíð og skrifaði: „Jahérna, núna held ég að Dabbalingur hafi náð botninum í aumu skítkasti.“
Hannesi Hólmsteini, sem er þekktur fyrir að mæra sinn gamla vin, virðist hafa blöskrað þessi athugasemd og túlkar hana sem markaðssetningu á majónesi. Hann svarar að bragði: „Ótrúlega ómerkileg athugasemd. Ég er ekki viss um, að ég kaupi aftur Gunnars majónes, ef þetta er markaðssetningin, eins og mér hefur fram að þessu fundist það gott.“
![Skjáskot af upphlaupi HHG.](https://jack-daniels.is/wp-content/uploads/2013/06/skjáskot-hhg-majones-300x120.jpg)
Helen Gunnarsdóttir er furðu lostin yfir þessari athugasemd. „Ég tengist ekkert majónesfyrirtækinu. Mér hefur oft verið ruglað saman við Helen í Gunnars Majónesi og á tímabili útvegaði ég mér farsímanúmerið hennar til að geta beint fólki í rétta átt,“ segir hún og bætir við að hún hafi verið orðin ansi þreytt á þessum eilífa misskilningi. „En þetta er nú það allra fyndnasta sem ég hef lent í hingað til,“ segir hún og vonar að athugasemd hennar um Davíð Oddsson þurfi ekki að bitna á majónesfyrirtækinu og viðskiptum þess.
Fólki til glöggvunnar á því hvaða vörur það eru sem Gunnars framleiðir og Hannes ætlar að segja upp viðskiptum sínum á er hægt að finna með því að smella hérna.
Einnig eru lesendur hvattir til að fylgjast vel með ferðum Hannesar Hólmsteins á næstunni og vera alveg klár með myndavélina, ef hann skyldi falla í þá freistni að kaupa vörur frá Gunnars og senda þær á meðfylgjandi netfang.