Það hefur oftar en ekki verið viðkvæði þeirra sem hafa farið til Noregs í atvinnuleit að það hvorki gangi né reki í þeirri leit þrátt fyrir að viðkomandi hafi vrið kallaður í ótal viðtöl við vinnumiðlanir og jafnvel hjá fyrirtækjum. Sjálfur hefur undirritaður lent í því og getur því vitnað að þetta er allt satt og rétt.
En hvers vegna fær maður þá ekki vinnu þrátt fyrir viðtölin?
Það hefur nefnilega komið í ljós að þeir sem eru ekki með ferilskrá, (CV) eða illa uppsetta ferilskrá eiga mun erfiðara með að fá vinnu heldur en þeir sem eru með hana vel uppsetta og vandaða.
Það er heldur ekki nóg að vera með hana á Ensku því þá getur hún alveg eins endað í ruslinu þar sem Norðmenn er dálítið sérlundaðir hvað þetta varðar og vilja helst fá hana á Norsku þó vissulega séu undantekningar á því.
Ef þú sjálfur ert ekki góður í að skrifa Norsku, fáðu hjálp við að gera góða ferlskrá en taktu líka fram að þú hafir fengið hjálp við hana. Það er þá líka nauðsynlegt að það komi skýrt fram hvað þú sjálf/ur ert góð/ur í málinu upp á að tala, lesa og skrifa það. Einnig er gott að taka fram færni í öðrum tungumálum svo vinnuveitandi hafi það til hliðsjónar.
Á þessari síðu hérna, sem er á Norsku, eru góð ráð um hvernig hin „fullkomna“ ferilskrá ætti að vera.
Það er gott að hafa þessa síðu í bakhöndinni þegar þú ert að setja upp þína ferilskrá því það getur ráðið úrslitum um hvort þú færð vinnu eða ekki og þá hvað fljótt þú færð vinnuna.