Íslendingum verður seint viðbjargandi vegna fávitahátts og tillitsleysis, það hefur gosið í Geldingadal fært okkur sönnur fyrir.
RÚV var svo elskulegt að setja upp myndavél sem sýnir beint frá gosinu og margir sem ekki komast á gosstöðvarnar nýta sér til fullnustu eða mundu gera það ef ekki væri fyrir athyglissjúka fábjána sem standa fyrir framan myndavélina og glenna sig eins og þeir fávitar sem þeir eru, langtímum saman og eyðileggja þar með upplifunina fyrir þeim sem reyna að fylgjast með streyminu.
Útlendingar sem ætla að fylgjast með streyminu hafa haft í flimtingum að þarna sé mörlandanum rétt lýst, að þeir séu athyglissjúkir fábjánar sem hafa það að skemmtunn að skemma sem mest fyrir öðrum með hálfvitahættinum.
Hvernig væri nú að RÚV mundi rífa sig upp á rassgatinu og setja fjandanns myndavélina á þriggja metra staur svo hægt sé að horfa á gosið í friði fyrir fávitahjörðinni geiflandi sig framan í heiminn?