Skip to content

Jack H. Daniels

Svarthol Hugans

Menu
  • Forsíða
  • Hlekkjasafn
    • Eldri kannanir
    • Fréttamiðlar
      • Innlendir
      • Erlendir
    • Sölusíður
    • Tæknisíður
    • Blogg
    • Ferðalög
  • Um síðuna
  • Myndir
    • Framkvæmdir í hesthúsi
    • Erlendar kassakvittanir
    • Minning um Svein Inga Hrafnkelsson
  • Hafa samband
  • Hafa samband
  • Fréttaveitan
Menu

MEINHORNIÐ! – Samtök Atvinnulífsins líta á launþega sem heimskingja

Posted on 30. nóvember 2014
SA.  Samtök siðblindra milljarðamæringa.
SA. Samtök siðblindra milljarðamæringa.

Samtök Atvinnulífsins eru eldsnögg til þegar þarf að telja launþegum trú um að þeir séu heimskingjar.
Nýjasta dæmið sannar það ágætlega en nú hafa þeir hjá SA látið Capacent gera fyrir sig könnun til að færa sönnur á að yfirgnæfandi meirihluti sé meðal þjóðarinar við efnahagslegan stöðuleika þó svo launþegar þurfi að svelta lungan úr mánuðinum.

Það er alltaf jafn sorglega fyndið að sjá eiginhagsmunasamtök milljóna og milljarðamæringa reyna að halda því fram að sanngjörn laun til almennings muni ógna stöðugleikanum og setja verðbólguna á fullan skrið þegar þeir sjálfir hafa hvað eftir annað orðið uppvísir að því að hækka sín eigin mánaðarlaun um margföld laun „þrælana“ sinna hvað eftir annað, ár eftir ár með dyggri aðstoð stjórnvalda.

Í hvert sinn sem dregur að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði byrjar gengdarlaus lygaáróður frá milljarðaklúbbnum SA gegn launahækkunum.  Er þá ræstur út yfirvarðhundur Atvinnurekenda, Gylfi nokkur Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sem hefur sýnt sig í síðustu tveim kjarasamningum ganga fullra erinda atvinnurekenda og mun hann gera það einnig núna þrátt fyrir yfirlýsingar um annað.

Meinhornið ætlar ekki að leggja dóm á hræsnina, lygarnar og þann gengdarlausa áróður sem SA stundar til að koma í veg fyrir launahækkannir, það verður hinn almenni launþegi að gera sjálfur og eiga það við sína samvisku hvort hann vill að hans fjölskylda og börn sem og félaga hans, vina og annara sem eru á lægstu launum, þurfi að svelta lungann úr mánuðinum vegna láglaunastefnu siðblindra og óheiðarlegra vinnuveitenda.

Meinhornið þakkar þér lesturinn.

Deila:

  • Tweet
  • More
  • Email
  • WhatsApp
  • Print
  • Reddit
  • Share on Tumblr

Svipað efni

Umsagnir

Umsagnir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrifa

Kaffikaupastyrkur

Splæsir þú kaffi?

Vinsælt síðustu vikuna

  • Vinsælt
  • Nýjast
  • dag Vika Mán. Allt
  • Jón Stóri bráðkvaddur á heimili sínu. (11 views)
  • Fasteignaverð í Svíþjóð að gefnu tilefni (5 views)
  • Kórstelpurnar sólgnar í slátrið (2 views)
  • Þér hefur borist tölvupóstur! ÞÚ ERT REKIN! Siðferðisvitund stjórnenda 365 miðla (2 views)
  • Loforðabréf Bjarna Ben til eldri borgara fyrir síðustu kosningar (2 views)
  • Þegar andskotinn bænheyrði Bjarna Ben
  • Ruslfréttastofa RÚV
  • Lindarhvolsskýrslan afhjúpar skipulagða glæpastarfsemi
  • Þegar lítið annað er hægt að gera
  • Verbúðarlíf: Formáli
Ajax spinner

Instagram

Færslusafn

Flokkar

©2023 Jack H. Daniels | Design: Newspaperly WordPress Theme
 

Loading Comments...