Skip to content

Jack H. Daniels

Svarthol Hugans

Menu
  • Forsíða
  • Hlekkjasafn
    • Eldri kannanir
    • Fréttamiðlar
      • Innlendir
      • Erlendir
    • Sölusíður
    • Tæknisíður
    • Blogg
    • Ferðalög
  • Um síðuna
  • Myndir
    • Framkvæmdir í hesthúsi
    • Erlendar kassakvittanir
    • Minning um Svein Inga Hrafnkelsson
  • Hafa samband
  • Hafa samband
  • Fréttaveitan
Menu

Lúser á krúser

Posted on 26. júní 2015
Lúser á Krúser. MYND: af Facebook.
Lúser á Krúser.
MYND: af Facebook.

Á meðfylgjandi mynd má sjá lúser á krúser fyrir utan vínbúðina í Skeifunni.
Myndinni hefur verið dreift grimmt á samfélagsmiðlum frá því hún birtist en þar sést ráðherrajeppa Sigmundar Davíðs lagt utarlega og illa í tvö stæði við vínbúiðina.

Myndin var tekin í gærkvöldi eða um hálf átta leytið og segir sjónarvottur í samtali við DV að það hafi verið talsverð örtröð á bílastæðinu á þeim tíma sem myndin var tekin. Á myndinni má þó sjá að nokkur bílastæði eru laus.

Slatti af fólki hefur tjáð sig í umsögnum um myndina og nokkrir eru duglegir að misnota orðið „einelti“ og þar með gjaldfella þá skilgreiningu sem það orð felur í sér, sennilega af heimsku eða vanþekkingu á því hvað einelti er.

Það hlýtur að vera sjálfsögð og eðlileg krafa á hendur ráðamönnum þjóðarinar og starfsmönnum þeirra, að þeir fyrstir allra fari að lögum og reglum og sýni með því gott fordæmi.  Í þessu tilfelli er ekki um neitt annað að ræða en hreinan og kláran dónaskap og frekju gagnvart öðrum sem þarna áttu leið um og því meira en sjálfsagt að birta þessa mynd með tilheyrandi athugasemdum um viðkomandi enda hafa þeir báðir til þeirra unnið með hegðun sinni og framkomu.

Annar meðlimur ríkisstjórnarinnar komst árið 2013 í fréttirnar fyrir svipaðar sakir en þá var Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, í bíl fyrir utan aðalbyggingu Keilis sem lagt var í bílastæði fyrir fatlaða.

Umsagnir

Umsagnir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrifa

Kaffikaupastyrkur

Buy Me a Coffee

Vinsælt síðustu vikuna

  • Vinsælt
  • Nýjast
  • dag Vika Mán. Allt
  • Jetpack plugin with Stats module needs to be enabled.
  • Lokun
  • Líkur á að langt eldsumbrotatímabil sé komið af stað á Reykjanesi
  • Þegar andskotinn bænheyrði Bjarna Ben
  • Ruslfréttastofa RÚV
  • Lindarhvolsskýrslan afhjúpar skipulagða glæpastarfsemi
Ajax spinner

Færslusafn

Flokkar

©2025 Jack H. Daniels | Design: Newspaperly WordPress Theme