Yfirlýsing frá Magnúsi Lárussyni kynbótadómara

Maggi Lár.

Í kjölfar þeirra atburða sem urðu á kynbótasýningu á Selfossi í vikunni og umfjöllunum þar um, hefur Magnús Lárusson kynbótadómir sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu.

Á kynbótasýningu á Selfossi nú í vikunni urðu mér á alvarleg mistök.  Lét ég orð falla sem eru algerlega óásættanleg fyrir mann í minni stöðu.  Ég biðst innilegrar afsökunar á framferði mínu.    Ég hef ávallt í mínum störfum gætt hlutleysis við dómstörf og metið hvert hross eins og það hefur komið fyrir í dómi hverju sinni.   Friður verður að ríkja um dómstörf kynbótahrossa og traust á því starfi sem þar fer fram.  Mín afglöp eru þess eðlis að því trausti er nú ógnað.   Mín persónulegu mistök mega ekki verða til þess að að kasta rýrð á það starf.  Ég mun því víkja til hliðar í dómstörfum kynbótahrossa að svo komnu máli og ítreka jafnframt afsökunarbeiðni mína til allra þeirra sem hlut eiga að máli.

Magnús Lárusson
Updated: 31. maí 2013 — 21:51