Nú liggur fyrir þinginu frumvarp til laga um endurmanntun atvinnubílstjóra og skulu allir þeir sem hafa aukin ökuréttindi gangast undir það að fara á endurmenntunarnámskeið á fimm ára fresti samkvæmt reglugerð sem Innanríkisráðuneytið er að innleiða.
Þegar maður fer að skoða rökin fyrir þessu námskeiði kemur ýmislegt í ljós sem stenst hreinlega ekki þau rök sem sett eru fram í reglugerðinni, til dæmis þetta:
Var það mat ráðuneytisins, samkvæmt úrskurðinum, að skyldu til reglubundinnar þjálfunar atvinnubílstjóra yrði að innleiða með lögum. Er þannig til komin tillaga um ákvæði þetta. Skilyrði stjórnarskrárinnar um almannahagsmuni verður að teljast fullnægt, enda er þjálfuninni einkum ætlað að viðhalda hæfi og menntun ökumanna og þannig bæta öryggi á vegum og öryggi ökumannanna sjálfra, þ.m.t. við störf sem þeir annast þegar ökutækið er kyrrstætt.
Atvinubílstjórar sem keyra meira en 100 þúsund kílómetra á ári eru sem sé ekki hæfir til þess að vinna sem atvinnubílstjórar nema að undangengnu þessu námskeiði sem einhver pappakassi sem aldrei, eða að minnsta að kosti hefur lítið sem ekkert vit á akstri flutningabíla eða rúta, á að leiðbeina.
Í raun eru þeir einu, sem þurfa á þessu námskeiði að halda, þeir sem ætla sér að vinna erlendis í framtíðinni.
Það er ekkert í þessum reglum sem réttlætir það að þær séu teknar upp á íslandi.
Ekkert.
Hér má nálgast reglugerðina í heild sinni. Skoðið sérstaklega vel fimmta liðinn í öllu skjalinu.