Frá því ég flutti aftur til íslands í lok ársins 2011 höfum við hjónaleysin reglulega keypt kjúklinganagga frá Holta enda ódýr matur og góður.
Fyrir nokkru brá svo við að uppskriftinni hjá þeim var breytt og eftir það er þessi vara nánast með öllu óæt. Bragðvont og svo brimsölt að manni hreinlega líður illa eftir að hafa sporðrennt nokkrum bitum af þessu.
Ástæða þess að ég skrifa um þetta núna er sú, að ég var að klára nokkra bita af nöggunum og mér hreinlega líður illa eftir að hafa borðað þá. Er þyrstur og þungur í maga.
Skoðum aðeins innihaldslýsingu á þessari vöru.
Innihald
Kjúklingur 68 %, sojaprótín, vatn, kartöflumjöl, salt, dextrósi, krydd (sellerý), vatnsrofin jurtaprótein, brauðhjúpur: hveiti, vatn, umbreytt hveiti sterkja, egg, bindiefni (E1404, E451, E470a), sýra (E270), litarefni (E160b, E100). Steikt upp úr repjuolíu.