Skip to content

Jack H. Daniels

Svarthol Hugans

Menu
  • Forsíða
  • Hlekkjasafn
    • Eldri kannanir
    • Fréttamiðlar
      • Innlendir
      • Erlendir
    • Sölusíður
    • Tæknisíður
    • Blogg
    • Ferðalög
  • Um síðuna
  • Myndir
    • Framkvæmdir í hesthúsi
    • Erlendar kassakvittanir
    • Minning um Svein Inga Hrafnkelsson
  • Hafa samband
  • Hafa samband
  • Fréttaveitan
Menu

Matur verður lúxusvara sem öryrkjar og aldraðir koma ekki til með að hafa efni á að veita sér

Posted on 21. ágúst 2014

Athugið, athugið!  Hæstvirtur innan gæsalappa skal lesast upphátt af mikilli fyrirlitningu og með hæðnistón.

Hefur aldrei svarað neinu en snúið út úr og kallað þetta ofsóknir á hendur sér.
Hefur aldrei svarað neinu en snúið út úr og kallað þetta ofsóknir á hendur sér.

Nú er búið að gefa það út af „hæstvitrum“ fjármálaráðherra að hækka skuli virðisaukaskatt á matvöru en lækka VSK á sykri.
Núna er VSK á matvöru 7% en með tillögu „hæstvirts“ fjármálaráðherra skal hækka skattinn í 18%.  Þau 18% verða snarlega að einhverju meira þegar verslanir fara að breyta vöruverðum hjá sér í kjölfar breytingana.
ERGO = matarverð mun hækka um 20 til 30% í kjölfarið.
Er það að koma til móts við tekjulága?
Jú kanski með því að hækka persónuafsláttar í 350 þúsund þannig að öryrkjar sleppi hreinlega við að greiða skatta af þeim lúsarlaunum sem þeim er skammtað.
Hinsvegar er nokkuð ljóst, að taki breytingar á VSK komi inn um áramót, þá verður aldrei komið með neinar leiðréttingar til handa þeim tekjulægstu fyrr en seint eða um síðir, ef þá nokkurntíma.

Við skulum minnast Bjarna Ben vegna ýmissa vafninga sem hann var flæktur í fyrir hrun og það er athyglisvert að skoða söguna í ljósi þess hversu mörgum fyrirtækjum honum tókst að koma í gjaldþrot og gera gjörsamlega eignalaus þannig að ekkert fékkst upp í skuldir á sínum tíma fyrir hrun.
Maðurinn hefur ekkert fjármálavit og hagstjórn hans einkennist af því að hygla eignafólki og eigendum sínum, LÍÚ klíkunni meðal annars en almenning fyrirlítur hann og hatar.
Hann hefur aldrei gert upp sína fortíð og aldrei svarað fyrir þær sakir sem á hann hafa verið bornar heldur vælt og grenjað eins og stunginn grís og kallað eðlilegar spurningar ofsóknir á hendur sér.
Siðferði þessa manns er algerlega niðri í gluggalausum kjallara þar sem engin lýsing nær til.  Samviska þessa manns er jafn svört og myrkrið í siðferðiskjallaranum hjá honum.

Ég mæli með að fólk hlusti á „hæstvirtan“ fjármálaráðherra í þættinum Sprengisandur frá því 17. ágúst þar sem hann lýsir þessum hugmyndum sínum.

Nái þessi markmið hans fram að ganga er ljóst að fólki í matarleit í ruslagámum mun fjölga gífurlega eftir áramót.

Síðan má fólk deila pistlinum og ræða hvað því finnst um þetta dæmalausa bull í „hæstvirtum“.

Umsagnir

Umsagnir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrifa

Kaffikaupastyrkur

Buy Me a Coffee

Vinsælt síðustu vikuna

  • Vinsælt
  • Nýjast
  • dag Vika Mán. Allt
  • Jetpack plugin with Stats module needs to be enabled.
  • Lokun
  • Líkur á að langt eldsumbrotatímabil sé komið af stað á Reykjanesi
  • Þegar andskotinn bænheyrði Bjarna Ben
  • Ruslfréttastofa RÚV
  • Lindarhvolsskýrslan afhjúpar skipulagða glæpastarfsemi
Ajax spinner

Færslusafn

Flokkar

©2025 Jack H. Daniels | Design: Newspaperly WordPress Theme