Hljóðfærum stolið

Smellið til að sjá í fullri stræð

Hlutirnir sem stolið var ásamt lýsingu á þeim og símanúmeri eiganda.

Aðfaranótt síðasta sunnudag var brotist inn í íbúð við Ásbrú í Keflavík og þaðan stolið dýrum hljóðfærum og búnaði þeim tengdum.  Tjónið er tilfinnanlegt fyrir eigandann og biður hann fólk um að hafa augun opin fyrir því ef þau verða boðin til sölu eða sjást í umferð einhversstaðar.

Á meðfylgjandi mynd er símanúmer eigandans en einnig er hægt að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum sem fer með rannsókn málsins.

Grunur leikur á að þjófagengi sé á ferðinni sem brýst inn og tekur hluti sem hafa verið pantaðir erlendis frá og því er alveg möguleiki á að sé búið að senda þetta úr landi, en gera verður ráð fyrir að hlutirnir séu samt enn á landinu.  Ef fólk rekst á eitthvað af þessu inni á innlendum sölusíðum, þá endilega hafa samband við eiganda eða lögregluna á Suðurnesjum.

Umsagnir

Umsagnir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrifa

Updated: 7. febrúar 2013 — 18:14