Blessuð, fokking, andskotans álagningin sem allir kvíða fyrir að skoða og þá sérstaklega öryrkjar sem náðarsamlegast fá skitna hungurlús á mánuði til að lifa af, tekjur sem eru langt undir þeim mörkum sem teljast til fátæktar og margir jafnvel minna eða undir því sem kallast sárafátækt.
Ég skoðaði álagningaseðilinn og fyrst varð ég hissa.
Síðan helltust vonbrigðin yfir mig en að lokum varð ég sjóðbullandi öskureiður.
Ég held að myndin sem fylgir með þessum pistli útskýri sig alveg sjálf enda þarf ég að borga rúmlega 48 þúsund til baka og þess krafist að það gerist núna í einni greiðslu þann fyrsta júní.
Well! Þeir geta fokkað sér með þetta enda er þetta útsvar til sveitarfélagsins sem ég bjó síðast í á íslandi en síðan eru liðin tæp tvö ár.
Af hverju á ég að greiða nærri fjórðung af mánaðarlaununum mínum til sveitarfélags sem ég hef engin tengsl við?
Ég nýti mér enga þjónustu þess, á sennilega ekki eftir að koma þangað heldur og vill bara ekkert af þessu sveitarfélagi vita.
Persónulega finnst mér verið að ræna mig enn eina ferðina með þessu en nú þegar er stolið af mér 100. krónum í hverjum einasta mánuði og hefur gert í mörg ár, og það gerir Tryggingastofnun ríkisins með góðfúslegu leyfi Ríkisstjórnar íslands og samþykki alþingis.
Síðan kemur eitthvað sveitarfélag uppi á skrípaskeri og krefst þess að ég greiði útsvar til þeirra þó ég búi erlendis?
Hvað í heitasta helvíti er á þessu skrípaskeri?
Mig langar að vita hvort allir íslendingar sem eru að fullu búsettir erlendis og þá sérstaklega aldraðir og öryrkjar séu að fá svona bakreikninga frá skattinum vegna útsvars frá því sveitarfélagi sem það hafði síðast lögheimili í á íslandi.
Hægt er að skilaboð í forminu hér að neðan.
[wpforms id=“3006″ title=“false“ description=“false“]