Ekki nóg með það, heldur var aðkoma ríkisins til háborinar skammar á allan hátt í samningaferlinu. Það er ljóst að kjör þeirra lægst launuðu rýrna talsvert á komandi ári ef miðað er við 4,5% verðbólgu því ASÍ samþykkti 2,8% launahækkunn. Þetta þýðir í raun kauplækkunn fyrir almúgan upp á 2,3%.
Verkalýðsfélögin eru dauð og grafin þökk sé fólkinu sjálfu sem borgar í þau.
Vilhjálmur Birgisson skrifar á facebook síðu sína eftir að ljóst var að samningar yrðu undirritaðir.
Ég er svo sorgmæddur og reiður fyrir hönd íslensks verkafólks að það nær engu tali. En eins og ég sagði í dag þá sýnist mér að íslensk verkalýðshreyfing sé endanlega að deyja drottni sínum vegna kjarkleysis og aumingjadóms.
En af hverju er ég svona reiður og sorgmæddur? Í fyrsta lagi fórum við fram með kröfu um að lágmarkstaxtar verkafólks myndu hækka um 20.000 kr. sem hefði þýtt að lægsti taxti hefði farið úr 191.000 kr. í 211.000 kr. Þetta fannst mér meira segja afar hógvær krafa. Þessi samningur sem núna er verið að undirrita þýðir að lágmarkstaxtinn fer einungis uppí 201.000 kr. og hækkar því um 9.750 kr.
Í örðu lagi þá er ekki gert ráð fyrir að lágtekjufólk með tekjur undir 250.000 kr. fái neinar skattalækkanir en á sama tíma á hátekjufólk með t.d. 1 milljón eða meira að fá skattalækkun á ársgrundvelli í kringum 42 þúsund!
Í þriðja lagi þá er ASÍ og Samtök atvinnulífsins búin að skuldbinda alla þá sérkjarasamninga sem aðildarfélög ASÍ eiga eftir að gera til að hlíta sömu launahækkunum sem verið er að semja um núna. Þetta þýðir t.d. að allir stóriðjusamningarnir og fiskmjölssamningar sem á eftir að gera eru bundnir af þessum skammarlega samningi.
Skoðum aðeins hvað þýðir þessi samningur t.d. fyrir fiskvinnslukonu sem hefur starfað í 30 ár í greininni. Jú hún fær 9.750 kr. hækkun á mánuði en gerir í vasann í kringum 5.700 kr. Þessi fiskvinnslukona nær ekki 250.000 kr. í heildarlaun á mánuði og fær því enga skattalækkun. Þessi kona fær því í vasann á heilu ári heilar 68.000 kr.
Skoðum hvað maður sem er með 1,2 milljón í laun fær úr þessum samningi en það eru t.d. laun forseta ASÍ. Þessi einstaklingur hækkar um 2,8% sem þýðir 33.600 kr hækkun á mánuði og þessi einstaklingur fær líka skattalækkun uppá ca. 3.500 kr. á mánuði eða sem nemur 42.000 kr. á ári. Að frádregnum sköttum þá skilar þetta í vasann 23.000 kr. á mánuði. Takið eftir lágtekjufólkið fær 5.600 í vasann!
Skoðum hvað maður sem er með 2,2 milljón í laun fær úr þessum samningi en það eru launakjör sem eru nærri lagi þeim sem framkvæmdastjóri SA er með. Þessi einstaklingur hækkar um 61.600 kr.á mánuði og þessi einstaklingur fær líka skattalækkun uppá ca. 3.500 kr. á mánuði eða sem nemur 42.000 kr. á ári. Að frádregnum sköttum þá skilar þetta í vasann um 40.000 kr. á mánuði. Takið aftur eftir lágtekjufólkið fær 5.600 kr. í vasann.
Hátekjufólkið er að fá bara í skattlækkun 42.000 kr. á ári á meðan lágtekjufólkið fær enga skattalækkun en launahækkunin skilar litlu meira en skattalækkun hátekjufólksins eða 68.000 kr.
Þið verðið að fyrirgefa mér en óréttlætið og misskipting er allsráðandi og ég fer ekki ofan af því að íslensk verkalýðshreyfing hefur brugðist þessu fólki illilega og er því nánast að deyja drottni sínum og því segi ég blóm og kransar eru af þakkaðir en þeir sem vilja minnast verkalýðshreyfingarinnar er bent á að styrkja lágmarkstaxta verkafólks!
Það er ömurlegt að þurfa að viðurkenna að verkalýðsfélögin í landinu eru búin að vera.
Þökk sé hinum almenna félagsmanni sem nennti ekki eða þorði ekki að berjast fyrir kjörum sínum.
Íslendingar eru aumingjar og ræflar.