Það hefur ekki verið mikill tími til að skrifa um ferðalag mitt frá Íslandi til Svíþjóðar enda svo sem ekki frá miklu að segja nema þá helst það að ég er kominn til Munkofrs í Svíþjóð með viðkomu og smá stoppi í Danmörku og Noregi hjá góðum vinum.
Það sem helst er að frétta í dag þegar þetta er skrifað er að ég er að fara að ganga frá leigu á húsi hér á svæðinu, reyndar rétt norðan við Munkfors í Hagfors kommúnu, smábæ þar sem lífið er rólegt og kyrrlátt. Nákvæmlega það sem hentar mér best. Gengið verður frá samning í dag og ég fæ lykla annað hvort í dag eða á föstudaginn.
Ég ætla bara að benda á fésbókarsíðu mína fyrir þá sem vilja fylgjast með mér og eins Instagram síðuna því ég á ekki eftir að setja mikið af færslum hér inn á næstunni ef að líkum lætur en mun þó skrifa einn og einn pistil þegar sá gállinn er á mér.
Meira síðar.