Hún Katrín Jakobsdóttir var með beina útsendingu á Insta og Fésbókinni þar sem hún var að „svara spurningum“ frá fólki og verð ég að segja að þar kom lítið annað fram en sjálfshól um hvað hún og ríkisstjórnin hafi staðið sig vel í öllum málum á kjörtímabilinu og hvað þau væru í raun frábær og æðisleg í alla staði. Ekkert nýtt þar á ferðinni svo sem.
Mér fanst erfitt að halda þræði yfir blaðrinu í henni enda ekkert nýtt sem kom fram þar þangað til hún fór að „jarma“ um stjórnarskrárbreytinguna sem hún lagði fram um daginn og ég missti töluna á því hvað hún sagði oft í þeim hluta orðið: „frábær/t“ um þetta afstyrmi sem hún ætlar að leggja fram í óþökk stjórnarskrárgafans, þjóðarinar. Ég fékk klígjuna upp í hálsinn undir þessu sjálfshóli hennar.
Ekki svaraði hún spurninginni sem ég lagði fyrir hana og margir fleiri, þær urðu þrjár hjá mér og hljóðuðu svona:
1: Hvenær verður þeim ólöglega þjófnaði sem kallast „skerðingar“ afnumdar að fullu?
2: Hvenær verða bætur almannatrygginga hækkaðar þannig að fólk geti lifað mannsæmandi lífi af þeim?
3: Gætir þú treyst þér til að lifa af á leigumarkaði af 250 þúsund krónum á mánuði útborgað?
Eins og við var að búast passaði hún sig á því að sniðganga þær en í lokin tók hún fram að erfiðasta spurningin sem hún fékk tengdist tuðrusparki í enska boltanum.
Hvað segir það okkur þegar forsætisráðherra íslands finnst tuðruspark taka meira á sína andlegu heilsu heldur en efnahagur þjóðarinar og afkoma þeirra sem lifa undir fátækarmörkum?