Ásmundur Friðriksson þingmaður sjálfstæðisflokksins rukkaði ríkið um 4,6 milljónir fyrir að keyra um kjördæmi sitt á síðasta ári eða að meðaltali um 385 þúsund krónur á mánuði í endurgreiðslu úr ríkissjóði vegna keyrslu sinnar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kílómetra í fyrra, og fékk endurgreitt frá ríkinu vegna kostnaðar fyrir þann akstur.
Til upprifjunar má nefna það að í hvert skipti sem komið hefur til tals að laga kjör öryrkja á íslandi hefur Ásmundur greitt atkvæði gegn því en útborguð laun öryrkja í dag sem hefur eingöngu bætur frá TR eru krónur 196.762,- eftir skatta og gjöld, eða 2.361.144,- krónur á ári.
Nú væri fróðlegt að vita hvernig þingmönnum litist á að fá á sig sömu skerðingar og við öryrkjar þyrftum að lifa við og skulum við taka dæmi um hvernig slíkt gæti litið út fyrir þeim því þeir eru jú að fá allskonar viðbótargreiðslur ofan á þingfararkaupið sem er í dag 1.101.194,- krónur á mánuði, eða nærri hálf árslaun öryrkjans.
Til viðbótar fá varaforsetar Alþingis 15 prósent álag á þingfararkaup, formenn fastanefnda fá sama álag ofan á sín laun, varaformenn nefndanna fá tíu prósent og aðrir varaformenn fimm prósent. Þeir þingmenn sem eru formenn stjórnarflokka,en eru ekki ráðherrar, fá greitt 50 prósent álag á þingfararkaup.
Auk þess fá þingmenn landsbyggðarkjördæma greitt 134.041 krónur í húsnæðis- og dvalarkostnað ef þeir halda ekki annað heimili í höfuðborginni. Þá fá þeir einungis 53.616 krónur í viðbót. Allir þingmenn fá greiddar 30 þúsund krónur á mánuði í fastan ferðakostnað og 40 þúsund krónur í svokallaðan starfskostnað. Því eru laun þingmanna hærri, og í mörgum tilfellum mun hærri, en þingfarakaup segir til um.
Þingmennirnir sjálfir skrá hversu mikið þeir keyra vegna starfa sinna og fá svo kostnaðinn vegna akstursins endurgreiddan. Sá sem keyrði mest í fyrra fékk, líkt og áður sagði, um 385 þúsund krónur endurgreiddar á mánuði vegna aksturs í starfi.
Sá sem keyrði næst mest fékk um 288 þúsund krónur í endurgreiðslur á mánuði að meðaltali og sá sem situr í þriðja sæti um 257 þúsund krónur á mánuði.
Hvernig væri að setja krónu á móti krónu skerðingu á þessar djöfullsins blóðsugur eins og við öryrkjar þurfum að kljást við?
Þetta hyski blóðmjólkar ríkisspenan og kennir svo öryrkjum og öldruðum um að svindla á kerfinu ef þeir fá nokkrar krónur aukreitis ofan á þær lúsarbætur sem þeim eru skammtaðar af skíthælum, gagnslausum ríkisspenablóðsugum eins og Ása ökuóða og Kötu littlu lyga og svikatík.
Og hvað hefur svo Ásmundur gert á sínum þingmannsferli annað en vera afæta og blóðsuga?
Það finnst ekkert gagnlegt eftir hann sem þingmann en duglegur hefur hann verið að gjamma fyrir eigiendur sína, sjálfstæðismafíuna og glæpalýðinn í þeirra röðum.
Út af alþingi með svona bölvaða djöfulls aumingja og afætur sem bljóðsjúga ríkissjóð fyrir sjálfa sig til að hagnast á fé skattgreiðeinda.