Boðað er til mótmæla við Innanríkisráðuneytið kl. 12 í dag, miðvikudag, þar sem þess er krafist að Hanna Birna segi af sér embætti meðan mál hennar og ráðuneytisins séu til rannsóknar.
Á DV er greint frá því að þrenn samtök, lýðræðisfélagið Alda, Attac á Íslandi og No Borders hafa boðað til mótmæla á Facebook. Krefjast þau þess að komist verði til botns í trúnaðarbresti innanríkisráðuneytisins gagnvart hælisleitendunum Tony Omos og Evelyn Glory Joseph og að Hanna Birna víki á meðan rannsóknin stendur yfir. Eins og DV hefur greint frá er fordæmalaust að ríkissaksóknari mæli fyrir um lögreglurannsókn á háttsemi ráðuneytis. Engu að síður hafa formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins ekki farið fram á að Hanna Birna stígi tímabundið til hliðar.
Á meðal þeirra sem boða komu sína á mótmælin eru leikararnir Benedikt Erlingsson og Stefán Karl Stefánsson, rithöfundarnir Kristín Eiríksdóttir og Hallgrímur Helgason, stjórnmálamennirnir Líf Magneudóttir, Birgitta Jónsdóttir og Mörður Árnaso auk Frosta Logasonar í Harmageddon. „Ég skal sjá um bílinn. Þið umkringið húsið,“ skrifar Hallgrímur Helgason og vísar þar til atviks úr Búsáhaldabyltingunni þegar hann bankaði í bíl forsætisráðherra.
Gaman er að sjá hvað margir varðhundar Sjalla og Hönnu Birnu koma fram gjammandi um þetta málefni og er deginum ljósara að fæstir þeirra hafa yfir höfuð kynnt sér hvernig málinu er háttað á nokkurn hátt og hika þeir margir hverra ekki við að koma með rangtúlkanir á málinu eða hreinlega bara ljúga upp einhverju bulli þegar viskan er ekki til staðar.
Maður verður alltaf jafn hissa þegar fólk opinberar heimsku sína og fáfræði í umsagnakerfum fjölmiðlana.
Nokkur dæmi:
Stjáni Blö · Vakta · Virkur í athugasemdum · Inter-University Centre for Astronomy and Astrophysics
http://www.visir.is/
-
Ingi Gunnar Jóhannsson · Virkur í athugasemdumÞetta er mjög athyglisverð yfirlýsing hjá Sigvalda: „hef alltaf kosið minn flokk þó ekki hafi ég alltaf verið sáttur við allt sem frá flokknum hefur komið“.
Mikið væri Ísland betra ef það væru færri svona sanntrúaðir einstaklingar sem kjósa bara „sinn flokk“, alveg sama hvaða bull „minn flokkur“ framkvæmir. Sigvaldi og allir hinir sem kjósið alltaf „ykkar flokk“, þið þurfið að átta ykkur á að stjórnmálaflokkar eru alls ekki fótboltafélög.
-
Sigvaldi Ómar Adalsteinsson · Héviz Szent András, Veszprem, HungaryKæri Ingi Gunnar jóhannsson,,við eigum marga mjög hæfa einstaklinga innan sjálfstæðisflokksins og einnig í öðrum stjórnmálaflokkum,og ef þú ert tilbúinn að gagnrína þinn stjórnmálaflokk ef þú ert á annað borð tengdur stefnu ákveðins stjórnmálaafls þá getum við verið sammála um að gera landið okkar betra.Höfum þetta gott í bili, restina má sjá á hlekk á fréttina ofan við umsagnirnar en það er sorglegt að sjá hvað mörgum finnst sjálfsagt að gjörspilltur ráðherra þurfi ekki að segja af sér meðan rannsókn fer fram og lýsir það best siðferði og gáfnafari þeirra sjálfra sem styðja Hönnu Birnu og Sjálfstæðisflokkinn.