Um helgina náðust myndir af tveim ungum mönnum sem rændu veski af starfsmanni í Pétursbúð við Ránargötu. Talið er að þessir sömu pörupiltar hafi áður verið á ferðinni á hóteli við Skúlagötu.
Myndirnar eru skýrar og greinilegar og má sjá piltana koma inn í búðina en síðan stendur annar á verði meðan hinn fer inn í starfsmannaaðstöðuna.
Myndirnar ganga nú milli fólks á Facebook og er fólk hvatt til að deila þeim svo hægt sé að hafa hendur í hári þjófana.
Myndirnar er búið að taka út.
Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um hverjir þarna eru á ferðinni er bent á að snúa sér til lögreglunar í Reykjavík.