Þegar gáfumenni tjá sig er ekki annað hægt en skella upp úr. Sérstaklega þegar um er að ræða grjótharðan sjálfstæðismann og lögfræðinema sem gerir sig að algeru fífli fyrir alþjóð.
Í frétt sem birt var á vísir.is í dag er mynd sem þetta umrædda gáfumenni tók og birti á instagram síðu sinni með yfirskriftinni; ,,Ofbeldi gegn fjölskyldubílnum“ en þar sést lögreglumaður vera að skrifa sekt á bíl sem lagt er ólöglega.
Sem lögfræðinemi ætti þetta umrædda gáfumenni að vita þá einföldu staðreynd, að þeir sem leggja ólöglega eiga það á hættu að verða sektaðir vegna stöðubrots. Um það er skýr heimild í lögum og það er enginn undanþegin því ákvæði.
En það hefur því miður sýnt sig í gegnum tíðina að Sjálfstæðismenn telja sig hafna yfir lög og reglur í þjóðfélaginu enda séu þeir úrvalsstétt fólks sem er yfir allt og alla hafin. Svona rétt eins og svínin í sögu George Orwells, Animal farm. Þar voru öll dýrin jöfn en sum bara aðeins jafnari.
Þetta viðhorf er því miður orðið allsráðandi innan Sjálfstæðisflokksins og því verður, hvað sem tautar og raular, að koma í veg fyrir að sá flokkur komist að stjórn landsins.
Viðhorf þessa manns sem og annara af hans sauðahúsi er þess eðlis að hér á eftir að verða annað hrun og verra komist þessi flokkur í stjórn landsins.
Það er bara staðreynd sem ekki er hægt að loka augum og eyrum fyrir.
Hér má svo sjá myndina frægu sem gáfumennið, sjálfstæðismaðurinn og lögfræðineminn Björn Jón Bragason setti á síðuna sína.