Það hefur talsvert verið í fréttum að mörg ungmenni geti ekki lesið sér til gagns þegar þau útskrifast úr grunnskóla. Ekkert kemur hins vegar fram um árangur þeirra í að koma frá sér skrifuðu máli og oftar en ekki má sjá ljótar málvillur á vefmiðlum hér í þessu landi. Sem dæmi er orðanotkunin á AF og AÐ mjög rangt notuð sem og orðunum OG og OF sem eru sett í vitlaust samhengi.
Ein er sú fréttakona á Stöð tvö sem er lýsandi dæmi fyrir fréttamann sem leitar AF en ekki AÐ og hún fær sér kanski OG mikið neðan í því AÐ OF til ef marka má það sem maður hefur heyrt til hennar oft á tíðum. Fallegt ekki satt?
En það var alveg kostulegt að sjá þessa skemmtilegu villu í auglýsingu frá Hópkaup áðan. Skjáskotið er hér að neðan ef það hefur verið lagað í kjölfar þessara skrifa.