Fátt er ömurlegra en ráðherra eða þingmaður sem stöðugt kemur fram í fjölmiðlum, í ræðustól alþingis eða hvert annað tækifæri þar sem hann getur viðstöðulaust logið framan í þjóðina án þess að skammast sín hið minnsta. Verra er þó þegar fjölmiðlar kóa með viðkomandi og reyna ekki einu sinni að reka lygarnar ofan í viðkomandi einstakling með staðreyndum sem þó liggja fyrir út um allt Alnetið.
Byrjum á Bjarna Benediktssyni sem kom í Kastljósið á dögunum og laug þar alveg viðstöðulaust framan í almenning í landinu að aldrei hefði almenningu haft það eins gott og um þessar mundir því „hagvöxtur“ væri svo mikill í landinu en týndi líka til ýmislegt annað og ósatt í þeim málum til að upphefja verk sín á síðasta kjörtímabili. Verst er þó að allt sem hann týndi til eru lygar og þær staðfestar hvað eftir annað frá hinum ýmsu fréttamiðlum, félagasamtökum og meira að segja hagstofunni og skattinum.
Lára Hann Einarsdóttir hefur enn einu sinni tekið foristu í því að upplýsa fólk um lygarnar, eitthvað sem enginn fjölmiðill í landinu nennir eða hefur vilja til að gera og klippt saman hvernig hún afhjúpar Bjarna sem lygara og lýðskrumara sem er ekki í neinu minnsta sambandi við land eða þjóð og hefur ekki einu sinni minnsta skilning á kjörum fólks í landinu. Kastljós fær þetta furðufyrirbæri sem Bjarni í raun er, í viðtal og leyfir honum síðan að bulla út í eitt og ljúga eins og enginn sé morgundagurinn án þess að reyna hið minnnsta að leiðrétta manninn.
Fjölmiðlar sem svona starfa og leyfa svona lýðskrum á að leggja niður á stundinni.
Myndband Láru má sjá hér að neðan.
1 thought on “MEINHORNIÐ: Viðstöðulausar lygar Bjarna Ben afhjúpaðar á núll og nótæm”
Comments are closed.