Ég er búinn að hlæja mig hálf rænulausan eftir fréttir af stórum gagnaleka af samfélagsmiðlinum Facebook en þar segir: “
Persónuupplýsingum ríflega 500 milljóna notenda samfélagsmiðilsins Facebook hefur verið lekið á netið. Gögnin innihalda upplýsingar um notendur í 106 löndum, þar af ríflega 31.000 notendur frá Íslandi.
Í gögnunum er að finna fullt nafn, símanúmer, staðsetningarupplýsingar sem deilt hefur verið með Facebook, sambandsupplýsingar, afmælisdaga og netföng. Lykilorð er ekki að finna í gögnunum.“
Þar sem flestir eru jú með þessar upplýsingar á prófílnum sínum og lítið mál að sjá þetta með því að skoða upplýsingar um viðkomandi þá finnst mér þetta varla frétt.
Engum persónuupplýsingum var stolið.
Engum lykilorðum var stolið.
Engum kretidkortaupplýsingum var stolið.
Sumar fréttir eru einfaldlega engar fréttir heldur nánast aðhlátursefni þegar upp er staðið.