Bifhjólakona og móðir úti á landi, nánar tiltekið á Akureyri hefur mætt ótrúlegum fordómum og vanþekkingu á leikskóla dóttur sinnar vegna þess að hún kemur með og sækir dóttur sína þangað á mótorhjóli.
Í stöðuuppfærslu á facebook segir hún að hún hafi verið tekin á eintal vegna þessa og hafi stjónendur leikskólans og aðrir foreldrar áhyggjur af velferð barnsins.
Eru það kanski sömu foreldrar og spenna ekki börnin sín í öryggisbelti á leið í leikskóla, „af því það tekur því ekki“?
Eða eru það foreldrar sem koma með börnin á reiðhjólum í leikskólan og jafnvel kanski hjálmlaus aftan á reiðhjólinu?
Því verður ekki svarað hér, en oft mætti fólk líta í eigin barm áður en það dæmir aðra og spyrja sig hvort það sjálft sé ekki að einblína á flísina í augum annara en sér ekki bjálkan í eigin augum.
En er eitthvað hættulegra að ferðast með barn á mótorhjóli með löglegum búnaði heldur en td. á reiðhjóli eða í bíl þar sem þau eru ekki einu sinni spennt í öryggisbelti?
Hún segir meðal annars; „ Þetta eru víst hinir foreldrarnir sem hafa áhyggjur. líklega starfsfólkið þarna líka. og það er skiljanlegt þegar maður veit ekkert hvað maður er að tala um. En þá finnst mér í lagi að fræðast um hlutina áður en því er skellt á mann að maður sé að leggja barnið sitt í ómælda hættu„.
Enn einu sinni þarf bifhjólafólk að sitja undir fordómum heimsku og fáfræði fólks sem heldur sig vita allt um hluti sem það hefur ekki hundsvit á.