Eins og komið hefur fram í fréttum eru foreldrar barna og unglinga sem æfa með barna og unglingakór Selfosskirkju æfir af reiði þar sem farið er að rukka foreldrana fyrir veru afkvæmana í kórnum.
Barnakórsgjaldið verður 6.000 krónur og unglingakórsgjaldið 12.000 krónur fyrir hvora önn. Afsláttur vegna þátttöku systkina verður þannig að 1. barn borgar 100% , 2. barn 75% og 3. barn 50%.
Kona sem lýsti óánægju sinni við prestinn fékk þessi svör; „Tja, sóknargjöldin hafa lækkað svo mikið undanfarið að einhvers staðar verðum við að ná inn þessum peningum“.
„Kjaftæði!“ Segir þessi kona og vitnar í bibblíuna; Hvað sagði Jesús þegar hann velti um borðum víxlaranna í musterinu: „Hús mitt á að vera bænahús, en þér hafið gert það að ræningjabæli.
Barna og unglingakórinn var snarlega skírður upp á nýtt í eftirmiðdaginn og heitir nú Betli-hem.