Ég er búinn að fá þónokkuð af fyrirpsurnum frá fólki sem ég þekki og þekki ekki, hvernig standi á því að Tryggingastofnun geti leyft sér að koma fram við fólk eins og fávita með því að flýta örorkumati þess um sex til átta mánuði án þess að láta fólk vita af því sem síðan hefur orðið til þess að fólk missir bæturnar og lendir í vanskilum með reiknga, húsaleigu og annað sem þarf að borga um hver mánaðarmót.
Það er eins og þeir sem stjórna hjá þessar stofnun vinni í því daga og nætur að gera öryrkjum lífið eins erfitt og ómögulegt og hugsast getur með gjörningum sem eru svo langt frá raunstefnu þessarar stofnunar að maður á varla orð yfir það.
Síðan er það endurmatið sjálft. Sumir þurfa að endurnýja matið árlega, aðrir á tveggja ára fresti, þriggja eða fimm ára fresti og það er alveg réttlætanlegt í mörgum tilfellum en þegar lamaður einstaklingur sem á enga von um bata þarf að fara í endurmat á þriggja eða fimm ára fresti þá er þetta komið út yfir allan þjófabálk.
Það þarf að fara að endurskoða og laga þessar fáránlegu reglur þessarar stofnunar og færa þær til nútímans.