Á meðfylgjandi myndum má sjá hvers konar matur það er eldri borgarar í Kópavogi fá heimsendan.
Hólmfríður Einarsdóttir deildi myndunum á Facebook síðu sinni eftir að henni ofbauð óætið sem móður hennar var sent frá bænum og í myndtexta segir:
Svona lítur sunnudagssteikin út sem öldruðum er boðið uppá í heimsendum mat í Kópavogi.
Þetta er til háborinnar skammar og ég skil ekkii hvernig er hægt að bjóða uppá þetta, einhverskonar pottréttur með 5 kjötbitum og pakkamús með, ofaná súpunni flytur fita, en súpan er svo þykk að hún lýkist helst ofsoðnum graut.
Ég gerði athugasemd við matinn sem Kópavogsbær sendir móður móður minni og fékk þá þau svör að “ það hafi enginn kvartað“. Ég afpantaði matinn alla daga nema laugardaga og það þótti bara fínt. Nokkra laugardaga í röð fékk hún fisk sem var svo illa framreiddur að hann varr ekki mannamatur.
Ég skora á ættingja þeirra sem eru ekki færir um að elda sér mat og þurfa að lata senda sér hann tilbúinn að skoða matinn sem er sendur. Gamalt fólk lætur ýmislegt yfir sig ganga og hendir þá bara matnum – en heimsendur matur er fyrst og fremst til að tryggja að þeir sem minna meiga sín borði hollan og góðan mat, sem er jú undirstaðan fyrir góða heilsu.
Varla þarf að taka það fram að meðfylgjandi myndir eru ekkert sérlega lystaukandi og varla er hægt að tala um hollan og góðan mat í þessu tilfelli.
Gott væri ef fólk kannaði hjá ættingjum sínum sem fá heimsendan mat hvernig gæðin á fæðinu eru.