Category: Örpistlar

Stuttir og hnitmiðaðir pistlar sem fá fólk til að hugsa og taka afstöðu.

Lottó

Alveg er það merkilegur fjandi að maður skuli aldrei fá vinning í lottóinu og er þó búinn að vera með sömu tölurnar í mörg ár núna. Ég var einmitt að ræða þetta við vin minn á dögunum þegar hann spurði mig hvenær ég hefði keypt miða síðasta. Ég horfði á hann, frekar hissa og sagði […]

Það er bara víst hægt að afnema skerðingarnar

Ólafur Þór Gunnarsson, varaformaður velferðarnefndar og fulltrúi meirihluta, segir mikilvægt að bíða eftir niðurstöðum vinnuhóps í velferðarráðuneytinu. Frumvarp um afnám skerðingarinnar hefur ekki verið afgreitt úr velferðarnefnd. Kona sem hefur verið öryrki í 10 ár og ætlaði að nota séreignasparnað til að greiða niður lán stóð frammi fyrir því að við það myndi hún tapa […]

Lögbrot stjórnvalda gagnvart lífeyrisþegum, #1

Hvað eftir annað hefur verið bent á það að stjórnvöld brjóti lög og stjórnarskrárákvæði gagnvart lífeyrisþegum á íslandi en algjörlega fyrir daufum eyrum þingmanna og ráðherra árum saman. Skerðingar sem settar voru á bætur almannatrygginga vegna annara launa, uppbóta, búsetu eða lífeyrisgreiðsla eru taldar ólögmætar og loksins er það verkefni að komast af stað að […]

Ert þú fáviti?

Hvað í veröldinni fær fólk til að halda að það geti komið fram hvert við annað eins og algjöran skít, áreitt það kynferðislega bæði í orðum og gerðum, sent kynfæramyndir óumbeðið bæði til karla og kvenna og ef viðkomandi vita að þetta sé áreiti og dónaskapur þá tryllist sendandinn og byrjar að hóta móttakandanum líkamsmeiðingum […]

Harðkjarna grillarar nota eingöngu kolagrill.

Ég tel mig vera harðkjarna grillara og fátt finnst mér meira ömurlegt en amatörar sem titla sig grillara þegar þeir draga fram útieldavélina, tengja gaskútinn og sjóða svo matinn í álpappír á þessum rándýru ruslahaugum sínum og sperra sig, fetta og bretta með öllum tilheyrandi „macho“ stælunum sem fylgja því að elda mat úti. Ef […]

Hvað mundi gerast ef allir launþegar tækju út launin sín í reiðufé um næstu mánaðarmót?

Ég fór aðeins á spá í það eftir að Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra kom með einhverja þá arfavitlausustu hugmynd sem ég hef á ævinni heyrt, að útrýma öllum viðskiptum með reiðufé, hreinlega banna það til að koma í veg fyrir spillingu. Fyrst gapti ég yfir þeim fullyrðingum sem hann setti fram en síðan sprakk ég úr […]

Rafrettuóðir Akureyringar fá verslun fyrir sig

Nú líður að því á næstu dögum að norðlendingar fái sína verslun þar sem þeir geta nálgast „Vape“ vörur á heimaslóðum. Djákninn er ný verslun sem opnar þann 21. júlí næstkomandi í Gránufélagsgötu 4 á Akureyri og verður með gott úrval af rafrettum og vökvum fyrir þá sem vilja losa sig undan tóbaksreykingum en hafa […]

Píratar í stórsókn

Smári McCarthy, kapteinn Pírata, segir að fyrsta verk Pírata á Alþingi verði að auka gagnsæi og opna bókhald ríkissins. Píratar vilji að almenningur fái að taka ákvarðanir um öll málefni sem varði þá sjálfa og til þess að hann geti gert það verði það að hafa aðgang að upplýsingum.  Upplýsingum sem þegar eru til á […]

Þegar sannleikurinn er einfaldaður

Ring! Ring! Vogunarsjóðurinn Aurapúkinn, góðan daginn. Sæll, Simmi formaður hérna. Sæll, hvað get ég gert fyrir þig? Til dæmis gefið mér 80% afslátt af kröfum ykkar í bankana. Nei, vinur það gerum við ekki, okkur liggur ekkert á að selja þetta. Viltu þá frekar að við hirðum þetta af ykkur með lagasetningu? Tja, gerðu það […]